Nú hefur verið blásið til síðustu skeiðleika ársins á Brávöllum á Selfossi. Verða Skeiðleikarnir haldnir þriðjudaginn 25. ágúst næstkomandi. Ef veður fylgir spám verða góð skilyrði á staðnum.
Skráning er hafin og henni lýkur klukkan 16:00 mánudaginn 24. ágúst.

Allt verður á sínum stað; 250m og 150m skeið, auk 100m flugskeiðs! Lagt verður upp úr því að láta þetta ganga snarpt fyrir sig eins og venja stendur til. Miðast allt við að knapar og áhorfendur geti átt notalega kvöldstund.
Styrktaraðili Skeiðleikanna í ár – hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur styrkir um verðlaunagripi sumarsins. Auk þess hefur ræktunarbúið Auðsholtshjáleiga styrkt um svokallaða Ödera sem veittir eru stigahæsta knapa á móti hverju og þeim knapa sem flest stig hlýtur á sumrinu. Stigahæsti knapi sumarsins hlýtur því í lok síðustu skeiðleika veglegan bikar til minningar um Einar Öder Magnússon.
Skráningargjaldið er krónur 2500.- á hest og skráning fer fram á þessa leið: Senda póst á skeidfelagid@gmail.com í honum verður að koma fram IS Nr hests, Kennitala knapa og keppnisgrein.
Greiðsla á að berasta á ;
reikningsnúmer : 0586-14-603238
Kennitala: 620606-0140
Staðfesting á greiðslu sendist á skeidfelagid@gmail.com
Skráning og greiðsla verður að berast fyrir 16:00 mánudaginn 24.ágúst