Síðstu skeiðleikar ársins verða á Brávöllum á Selfossi miðvikudagskvöldið 31.ágúst.
Skráning er hafin og henni lýkur klukkan 23:59 þriðjudaginn 30.ágúst
Skeiðleikarnir munu hefjast klukkan 19:00

Allt verður á sínum stað; 250m og 150m skeið, auk 100m flugskeiðs! Lagt verður upp úr því að láta þetta ganga snarpt fyrir sig eins og venja stendur til. Miðast allt við að knapar og áhorfendur geti átt notalega kvöldstund.

Styrktaraðili Skeiðleikanna í ár – hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur styrkir um verðlaunagripi sumarsins. Auk þess hefur ræktunarbúið Auðsholtshjáleiga styrkt um svokallaða Ödera sem veittir eru stigahæsta knapa á móti hverju og þeim knapa sem flest stig hlýtur á sumrinu.
Á síðustu skeiðleikunum verður stigahæsta knapa sumarsins veitt sérstök verðlaun til minningar um Einar Öder. Staða fimm efstu knapa er eftirfarandi.
1.Davíð Jónsson – 63.stig
2.Bjarni Bjarnason – 61.stig
3.Konráð Valur Sveinsson – 42.stig
4.Ævar Örn Guðjónsson – 36.stig
5.Sigurbjörn Bárðarson – 34.stig

Skráningargjaldið er krónur 2500.- á hest og skráning fer fram á Sportfeng. Velja þarf Sleipnir sem mótshaldara.
http://skraning.sportfengur.com/


Reikningsnúmer: 586 – 14-603238
Kennitala: 620606-0140

Staðfesting á greiðslu sendist á skeidfelagid@gmail.com
Skráning og greiðsla verður að berast fyrir 23:59 á þriðjudaginn 30.ágúst