Laugardaginn 11. mars næstkomandi verður fundur fyrir félögin á Suðurlandi og verður hann haldinn í Hliðskjálf á Selfossi í boði hestamannafélagsins Sleipnis og hefst kl. 11:00.

Þetta er þriðji fundurinn í fundarröð nefndarinnar en fyrsti fundurinn var haldinn á Akureyri og annar fundur var í Búðardal. Tókust þeir mjög vel og miklar og góðar umræður um málefnið.
Tilgangur fundanna er að efla tengsl nefndarinnar við það fólk sem vinnur að og hefur áhuga á æskulýðsmálum í hestamannafélögunum, að kynna starfsemi nefndarinnar og ræða almennt um æskulýðsmál og það sem brennur á fólki.

Eins og fram kom á Landsþinginu í Stykkishólmi í haust mun áhersla sambandsins vera á nýliðun og æskulýðsmál og er þessi fundaferð liður í því. Það er von nefndarinnar að sem flestir sjái sér fært að mæta á fundina sem eru opnir öllum áhugamönnum um æskulýðsstarf.

Æskulýðsnefnd LH hvetur áhugasama til þess að mæta og sækja góðan fund um málefni æskulýðsins í hestamennskunni. Það er stöðugt þörf á því að halda vel á spöðunum í þessum málaflokki.


Kær kveðja
F. h. Æskulýðsnefndar LH
Helga B Helgadóttir
s. 8202313