Í vetur, líkt og í síðasta vetur, verður boðið uppá reiðnámskeið í formi einkatíma.
Við erum svo heppin að hafa fengið til liðs við okkur 2 frábæra reiðkennara en þau koma til að vera með sinn hvorn hópinn en það eru þau Bergur Jónsson og Sara Rut Heimisdóttir reiðkennari frá Hólum.
Námskeiðin eru kennd á miðvikudagskvöldum og eru þannig sett upp að í boði er að skrá sig annaðhvort hjá Bergi eða hjá Söru Rut. Boðið verður uppá 4 skipti og það eru einungis 6 pláss í boði hjá hvorum kennara. Hvert skipti er 30 mínútna einkatími og byrjar fyrsti tími kl: 17:00 en sá síðasti kl: 19:30. Sara Rut byrjar sitt námskeið þann 31 . jan og kennir annan hvern miðvikudag (31 .jan, 14. og 28. feb. og 14. mars). Bergur byrjar 7. febrúar og kennir “hinn" hvern miðvikudag (7. og 21. feb, 7. og 21. mars).
Þó að hver tími sé 30 mínútur þá við hvetjum við nemendur til að fylgjast með hjá öðrum því þannig fæst mest út úr námskeiðinu.
Búið er að opna fyrir skráningu í sportfeng og kostar hvort námskeið 29.000.-
Kennsla fer fram í reiðhöllinni að Brávöllum.
Ef þú hefur áhuga þá ferðu inná http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx… velur Sleipni sem námskeiðshaldara skráir þina kennitölu sem Knapi/Sýnandi/Þátttakandi og velur svo annað hvort einkatímar hjá Bergi og einkatímar hjá Söru Rut þar sem stendur “veldu atburð”. Velur svo að setja í körfu og gengur frá greiðslu. Ef verið er að skrá þátttakanda undir 18 ára þarf að skrá kennitölu forráðamanns þar sem stendur “Forráðamaður knapa”
Ef þið hafið einhverjar spurning þá er um að gera að vera ófeimin að spyrja okkur í fræðslunefndinni.
Minnum einnig á eftirfarandi námskeið:
Einkatímar hja Kristínu Lárusdóttur: http://www.sleipnir.is/index.php/home/reieleieir-a-sueurlandi/1705-einkatimar-kristin-larusdottir
Námskeið hjá : Þórarni Ragnars: http://www.sleipnir.is/index.php/54-tilkynningar/fraeeslunefnd/1710-ertu-adh-stefna-a-lm2018-og-ert-i-unglinga-edha-ungmennaflokki
Kjarkur og Þor: http://www.sleipnir.is/index.php/54-tilkynningar/fraeeslunefnd/1709-kjarkur-og-thor-namskeidh-2
Fræðslunefnd Sleipnis