Sameiginlegum reiðtúr Æskulýðsnefndanna (sem var fyrirhugaður laugardaginn 26. maí, skv. dagatali) verður frestað um viku, til laugardagsins 2. júní. Veðurspáin fyrir kosningahelgina er vægast sagt hundleiðinleg og þar fyrir utan mjög mikið um að vera hjá fólki s.s. útskriftarveislur, kosningar og Fjör í Flóa.

Okkur sýnist á langtímaveðurspánni að sólin og sumarið séu að koma og við tippum á að það verði þurrt 2. júní. Líst ykkur ekki  bara vel á þetta plan ????

Reiðtúr - laugardaginn 2. júní 2018
Lagt verður af stað kl. 13:30 frá Reiðhöll Sleipnis. Reiðtúrinn tekur ca. klukkustund til eina og hálfa með góðum stoppum (nauðsynlegt er að börnin komi í reiðtúrinn með foreldri sínu eða forráðamanni).
Eftir reiðtúr munum við grilla, spjalla og leika okkur eitthvað saman í Reiðhöllinni eða úti eftir því hvernig viðrar.
Æskulýðsnefnd Sleipnis sér um mat og drykk.

Þeir sem hafa áhuga á að vera með vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Æskulýðsnefndar Sleipnis hronnbjarna@hotmail.com fyrir fimmtudaginn 31. maí.
Vonandi sjáum við sem flesta og endilega látið berast víðar.............
Bestu kveðjur frá Æskulýðsnefnd