Almennt reiðnámskeið hjá hestamannafélaginu Sleipni.
Námskeiðið er ætlað öllum sleipnisfélögum og eru 4 reiðtímar og einn bóklegur tími. Reiðtímarnir í reiðhöllinni eru seinnipart föstudags 27. janúar og 3. febrúar og laugardagsmorgna 28. janúar og 4. febrúar. Bóklegi tíminn verður í Hliðskjálf 2. febrúar og hefst kl 20:00. Lágmarksþátttaka er 8 manns.
Verð kr 12.000,-
Skráning hjá Sveini í síma 894-7146 fyrir 24. janúar.
Farið verður í :
- Að lesa hestinn rétt
- Hvað er hæfilegt að þjálfa mikið
- Hvernig nýtum við reiðhöll best við þjálfun
Aðalmarkmið námskeiðsins er að aðstoða hesteigendur við að þjálfa hinn almenna útreiðahest.
Kennari er Páll Bragi Hólmarsson Reiðkennari