Sumarferð Sleipnisfélaga   18.- 20. júní 2021.

 Ferðaáætlun: 

Föstudagur 18. júní. Lagt af stað frá Birtingaholti í Hrunamannahreppi um kl 13:00  og stefnan tekin upp Hrunamannahreppinn um Hrepphólahnjúka, Kirkjuskarð og riðið að Skipholti 1. 

Laugardagur 19. júní. Lagt af stað frá Skipholti og riðið upp sveitina, um Kóngsveg og Brúarhlöð að Kjóastöðum. Þaðan verður svo riðið um Haukadalsskóg síðdegis. 

Sunnudagur 20. júní. Farið frá Kjóastöðum og riðið með Tungufljóti að Kjarnholtum þar sem fljótið verður riðið. Þaðan verður riðið niður Eystri- Tunguna að lokapunkti ferðarinnar. 

Gist verður á Kjóastöðum báðar næturnar.

Rútuferðir: 

Föstudagur: Frá Kjóastöðum í Birtingaholt og seinnipartinn frá Skipholti til Kjóastaða

Laugardagur: Frá Kjóastöðum í Skipholt

Sunnudagur: Frá Hrísholti (lokastað) til Kjóastaða (til að sækja hestakerrur og bíla).

Gisting: 

  •             Tvær nætur á Kjóastöðum
  •             28 uppábúin rúm í 2 - 4 manna herbergjum
  •             Eigin tjald/vagn/hýsi aðgangur að salernum.
  •             Eigin dýna á gólfi í sal með aðgangi að salernum.

Varðandi gistingu í rúmum þá er framboðið takmarkað og því mun reglan fyrstur kemur fyrstur fær gilda. 

Matur:

            Föstudagur - hver og einn nestar sig að heiman. Seinniparts hressing og    kvöldverður verður sameiginlegur í veitingasal.

Laugardagur- Morgunverður, nesti smurt af morgunverðarborði, seinniparts- 

hressing og kvöldverður - allt sameiginlegt í veitingasal.

Sunnudagur - morgunverður  og nesti smurt af morgunverðarborði sameiginlegt í veitingasal.

Hestar:

Ferðin miðast við 2-3 hesta á mann. Við biðjum ykkur að skrá fjölda hesta í skráningarformið og hvort óskað er eftir flutningi fyrir hestana. 

Flutningur á hestum: Boðið verður upp á flutning á hestaflutningabíl og skrá þarf sérstaklega í þann flutning. Fim 17. júní frá Selfossi og sunnudag 20. júní frá lokastað.

Þeir sem flytja hross á eigin vegum geta komið með þau í Birtingaholt að kvöldi 17. júní eða að morgni 18.júní.                                                                       

  

Kostnaður:

  • Gisting, matur, salur, hagabeit fyrir hross, rútuferðir. 
  • 32.000 með gistingu í eigin vagni eða á eigin dýnu í sal.
  • 47.000 með gistingu í herbergi.
  • Hestaflutningar eru utan ofangreindra upphæða, 5.000 kr. pr. hest

Greiðsla fyrir ferðina leggist inn á reikning nr. 0152-26-7074  kt. 590583-0309 Þeir sem óska eftir herbergi bíði eftir staðfestingu áður en þeir greiða fyrir herbergið. 

Óskir um herbergisfélaga berist í tölvupósti á ferdanefnd@sleipnir.is 

Skráning hefst Föstudaginn 07.maí á vefsíðu Sleipnis www.sleipnir.is og greiða þarf fyrir ferðina fyrir 4. júní. 

Eingöngu skráðir félagsmenn  í Sleipni geta skráð sig í ferðina.

Allt miðast þetta skipulag við það að áfram gangi okkur vel að halda covid19 í skefjum og leyfilegt verði að fara í ferðir sem þessa í júní.

Ferðanefnd Sleipnis

Davíð,Benóný, 

Inga og Hrund