Æskulýðsmál
Hið árlega „Hestafjör“ Hestamannafélagsins Sleipnis verður haldið í Sleipnishöllinni sunnudaginn 30. apríl og hefst kl. 11.00. Ungir félagar Sleipnis ríða mynsturreið auk þess sem þar verða skemmtiatriði að ýmsu tagi.
Mætum öll og höfum gaman saman. Sjoppa á staðnum til styrktar æskulýðsstarfinu.
Æskulýðsnefnd Sleipnis
Keppnisnámskeið fyrir börn og unglinga.
Æskulýðsnefnd mun standa fyrir keppnisnámskeiði fyrir börn og unglinga sem hafa áhuga á að keppa á hestum sínum. Fyrirhugað er að námskeiðið hefjist strax eftir páska og verður í formi einstaklingstíma.